Spennandi starf á sviði eignatjóna
Umsóknarfrestur 12.08.2025
Fullt starf
Í boði er spennandi starf við mat og uppgjör fasteigna- og lausafjártjóna. Hjá Sjóvá starfar samstilltur hópur fólks sem leggur metnað í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina vegna tjónsatburða
- áætlanagerð vegna tjóna
- forvarna- og áhættuskoðanir
- eftirfylgni og samstarf við þjónustuaðila okkar
Menntunar- og hæfniskröfur
- iðnmenntun og/eða framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
- góð tölvufærni
- rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
- jákvætt hugarfar, góð aðlögunarhæfni og geta til að vinna sjálfstætt
- gott vald á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson, forstöðumaður Eignatjóna, olafurthor@sjova.is
Tengiliður
olafurthor@sjova.is